Þjónusta og viðhald
Reglubundið eftirlit og fyrirbyggjandi viðhald til að draga úr bilunum og óvæntum rekstrartruflunum.
Fá nánari upplýsingarLYFTUÞJÓNUSTAN
Við sjáum um þjónustu, reglubundið viðhald og viðgerðir á lyftum. Einnig aðstoðum við með ástandsmat, áætlanir, endurbætur og endurnýjun.
TILBOÐ FYRIR HÚSFÉLÖG OG FYRIRTÆKI
Fáðu skýra yfirsýn yfir núverandi þjónustusamning og kostnað við lyftuþjónustu. Við skoðum meðal annars hvað er innifalið, þjónustutíðni, útkallagjöld og uppsagnarfrest.
Án skuldbindingar. Tæknilegt ástandsmat og skoðun á lyftu eru sérverkefni.
ÞJÓNUSTA OKKAR
Við leggjum áherslu á skýra ráðgjöf og lausnir sem taka mið af ástandi og þörfum hverrar lyftu.
Reglubundið eftirlit og fyrirbyggjandi viðhald til að draga úr bilunum og óvæntum rekstrartruflunum.
Fá nánari upplýsingarGreining á bilunum, mat á úrbótum og viðgerðir til að koma lyftunni aftur í öruggan rekstur.
Hafa sambandYfirferð á ástandi lyfta, áætlun um viðhald og tillögur að forgangsröðun framkvæmda.
Skoða ástandsmatRáðgjöf og tilboð þegar kemur að endurbótum, nútímavæðingu eða endurnýjun lyftubúnaðar.
Skoða möguleikaÁSTANDSMAT OG ÁÆTLANIR
Þegar lyfta eldist þarf að meta hvort skynsamlegra sé að halda áfram með viðhald, ráðast í endurbætur eða skipuleggja endurnýjun. Við aðstoðum við að greina stöðuna og leggja línurnar fyrir næstu skref.
Óska eftir ástandsmatiStaða lyftunnar, fyrri viðgerðir og þekkt vandamál.
Viðhaldsþörf, mögulegar úrbætur og forgangsröðun.
Tillögur að næstu skrefum og kostnaðaráætlun eftir því sem við á.
ENDURNÝJUN OG ENDURBÆTUR
Við skoðum hvort hægt sé að endurbæta núverandi búnað eða hvort heildarendurnýjun sé hagkvæmari leið. Markmiðið er að velja lausn sem hentar aðstæðum og rekstri til lengri tíma.
UM OKKUR
Lyftuþjónustan leggur áherslu á þjónustu og viðhald sem byggist á vönduðum vinnubrögðum og raunhæfum lausnum.
Hvort sem verkefnið snýst um reglubundið viðhald, bilanir eða áætlanir um endurnýjun er markmiðið að gera næstu skref skýr og auðveld í framkvæmd.
HAFÐU SAMBAND
Þú getur hringt beint eða sent fyrirspurn. Segðu frá verkefninu og við skoðum næstu skref.
Mánudaga til fimmtudaga 08:00–17:00
Föstudaga 08:00–16:00
Lokað um helgar
Þjónustan er veitt hjá viðskiptavinum. Á Óseyrarbraut 7 eru verkstæði og lager.